Saturday, December 12, 2009

Jólasveinarnir... Santa Claus....es...

Í tilefni þess að Jólasveinarnir byrja að koma í nótt ákvað ég að skella upp vísunni eftir Jóhannes frá Kötlum, um vini okkar... og vona að þeir LESI ÞESSA FÆRSLUog sjái sér fært að koma og gefa mér gott í skóinn. Ekki e-ð svona klúður eins og í fyrra.... (ég varð svolítið sár bara)
Ég ætla að setja vísu um hvern jólasvein á hverjum degi til Jóla!!! skemmtilegt ekki satt?!

Stekkjastaur ásamt smá "intro" LET US BEGIN!


Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.

Þeir uppi á fjöllum sáust,
-eins og margur veit,-
í langri halarófu
á leið niður í sveit.

Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk,
en pabbinn Leppalúði,
-það var leiðindafólk.

Þeir jólasveinar nefndust,
-um jólin birtust þeir,
og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.

Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn

Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helst þeir leituðu
í eldhús og búr.

Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir,
ef enginn nærri var.

Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk - og trufla
þess heimilisfrið.

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

http://images.hugi.is/hatidir/154640.jpg

Þar með er það komið á blað! douzo!

No comments: